Sunday, April 16, 2006
Við skruppum vestur yfir páskana og höfum haft það alveg ágætt. Þetta er einmitt í fyrsta skipti í ansi langan tíma sem ég þarf ekki að nota páskafríið í að læra fyrir próf !! Svo er aftur bara þrír vinnudagar í næstu viku þannig apríl er alveg príðis mánuður þegar maður er ekki í skóla :) Þar sem ég var úti fyrstu vikuna í mánuðinum þá næ ég bara 12 vinnudögum í þessum mánuði, sem er akkurat ekki neitt...
En ætli það sé ekki best að fara ráðast á páskaeggið, étur sig ekki sjálft þetta helvíti (sem betur fer).
P.s. þess má nú geta að ekki ómerkari maður er Rafael Benitez á afmæli í dag, ekki slæmt að deila afmælisdegi með þeim manni.
Posted at 09:12 am by
Kalli
Permalink
Sunday, April 02, 2006
Jæja, ansi langt síðan maður lét heyra í sér síðast. Best að bæta aðeins úr því.
Núna ligg ég upp í rúmi á hótelherbergi á Radison SAS við Stansted flugvöll í London. Ástæðan fyrir því að ég er hér er sú að ég er á leiðinni á námskeið hjá einum af aðal birgjanum sem ég versla við í vinnunni. Semsagt þetta er vinnuferð :)
Við erum tveir í þessari ferð og flugum hingað til London í gær og fljúgum svo yfir til Þýskalands á eftir, nánar tiltekið til Paderborn og tökum taxa þaðan til Lippstadt. Þar verðum við á námskeiði fram á fimmtudag, áætluð heimkoma er seint á fimmtudagskvöldið.
Liverpool er á bullandi skriði þessa dagana, búnir að vinna 5 leiki í röð og skora í þeim 20 mörk sem er ansi gott á þeim bænum. Hafa ekkert verið allt of duglegir við að setj'ann þetta tímabilið. Þannig maður er ansi glaður Poolari þessa dagana. Ekki skemmir fyrir fréttirnar sem ég las í gær um að Michael Owen væri að fara snúa heim aftur. Það eru nú bara rétt 2 mánuðir síðan Guð (Robbie Fowler) snéri aftur heim á Anfield og nú ætlar Prinsinn af Wales, eins og Owen er oft kallaður, að koma til baka líka.
En þetta er fínt í bili. Ef ég verð svo heppinn að hafa internet tengingu á hótelinu í Lippstadt þá er aldrei að vita nema ég láti heyra í mér þaðan líka.
Posted at 11:22 am by
Kalli
Permalink
Friday, March 03, 2006
Var hjá tannlækni í morgun og var gert við eina skemmd og einn jaxl tekinn. Deifingin er að klárast akkurat núna en maður er búinn að gleypa verkjatöflur þannig vonandi að þetta sleppi nú til.
Helgin verður líklega bara tekin á rólegu nótunum, kannski kíkt í bíó eða eitthvað en varla neitt mikið meira. Hildur er laus við hitann og er komin til dagmömmunar aftur. Þar sem hún er búin að þurfa að vera svo mikið inni undanfarið verðum við foreldrarnir að vera dugleg að fara með hana út að leika um helgina :)
En best að halda áfram að flakka á milli þessara 60 sjónvarpsstöðva sem eru í boði á heimilinu...
Posted at 01:33 pm by
Kalli
Permalink
Wednesday, March 01, 2006
Þar sem að HM í fótbolta er í sumar var nú ekki hægt annað en að splæsa í áskrift að Sýn. Skellti ég mér á 6 mánaða áskrift þannig maður nær restinni af meistaradeildinni, F.A. bikarnum og hinu og þessu.
Annars er búið að vera ansi mikið veikindastúss á heimilisfólkinu undanfarna daga. Hildur hefur komist hálfan dag til dagmömmunnar síðustu 10 daga og er henni farið að leiðast ansi mikið að þurfa að hanga inni alla daga. Ég og Krista erum búin að vera kvefuð og með vott af hálsbólgu og lá Krista í rúminu sökum þess einn dag í síðustu viku. En vonandi að þetta sé nú að baki og eðlileg rútina fari nú að komast á hlutina aftur. Reyndar er ég að fara til tannlæknis á föstudaginn þar sem líklega verða einhverjir endajaxlar fjarlægðir þannig líklega verður maður eitthvað aumur eftir það. Allavega örugglega lítið um djamm um helgina ;)
Svo að lokum má nú geta þess að Bílanaust var að kaupa enn eitt fyrirtækið. Lesa má meira um það hér
Posted at 09:19 pm by
Kalli
Permalink
Sunday, February 12, 2006
Það sem ber hæst þessa dagana er að Hildur Tanja er byrjuð að hlaupa um alla íbúð og virðist ágætlega sátt við að geta trítlað um allt án þess að þurfa stuðning. Annars minni ég bara á síðuna hennar Hildar þar sem hægt er að lesa dagbókina hennar og skoða myndir og myndbönd.
Við fórum svo í bíó á föstudagskvöldið. Okkur var boðin pössun og þurftum við sko ekki að hugsa okkur tvisvar um og drifum okkur því í Smárabíó. Fórum á Fun with Dick and Jane og var það alveg ágætis skemmtun, mælum með henni :) Svo kíktu foreldrar mínir í heimsókn um helgina (þau urðu nú að sjá litla píslið hlaupa um) og pössuðu þau fyrir okkur á laugardagskvöldið þannig við komumst í leikhús í boði Bílanaust. Sýningin sem við fórum á heitir Naglinn og er eftir Jón Gnarr. Skemmtanagildið var ágætt framan af en svo fór þetta heldur að dala. En heilt yfir var þetta ágætis afþreying.
Þá er best að koma inná fyrirsögnina á þessari færslu, Litli kaupir stóra. En eins og flestir vita keypti Bílanaust, ásamt öðrum fjárfestum, Olíufélagið (Esso) í síðustu viku. Kaupverðið var nú ekki gefið upp en ég las í blöðunum að það væri c.a. 15-20 milljarðar, ágætis summa það. Það er hreint með ólíkindum hvað þetta fyrirtæki sem ég vinn hjá er að vaxa hratt um þessar mundir og bíð ég spenntur eftir að sjá hvaða fyrirtæki þeir kaupa næst. Ég er núna búinn að vinna þarna í rúma tvo mánuði og líkar bara mjög vel. Ég er ekkert smá ánægður með að hafa dottið niður á þetta djobb :)
En meira síðar - óverandát
Posted at 10:28 pm by
Kalli
Permalink
Thursday, January 26, 2006
Hún Hildur Tanja er búin að gefast upp á því hvað við vorum löt að færa ykkur fréttir af afrekum hennar þannig hún er komin með sína eigin bloggsíðu þar sem hún ætlar að deila með lesendum því sem á daga hennar drífur. Síðan fór í loftið í gærkvöldi og eru komnar inn myndir frá jólunum. Slóðin á síðuna er:
www.barnanet.is/hildurtanja
Posted at 09:14 pm by
Kalli
Permalink
Sunday, January 22, 2006
Allir vita að stóru bankarnir þrír, KB banki, Landsbankinn og Íslandsbanki, hagnast um þvílíkar upphæðir á ári hverju. Árið 2004 skiluðu þessir þrír bankar samtals 39,8 milljarða króna hagnaði eftir skatta og verður þessi upphæð örugglega mun hærri fyrir síðastliðið ár. Í ljósi þessa mikla hagnaðar er ekki skrítið að mér hafi brugðið svolítið þegar að ég labbaði inn í KB banka í Kringlunni í gær til að losa baukinn hennar Hildar Tönju. Hjá gjaldkeranum var skilti sem á stóð að 190 kr. afgreiðslugjald væri um helgar !!!! Þarf bankinn virkilega að rukka viðskiptavini sína um sérstakt gjald fyrir að hafa opið um helgar, hagnast bankinn ekki nóg ???
Mér fannst þetta svo alveg út í hött að ég varð bara að deila þessu með ykkur :)
Posted at 12:58 pm by
Kalli
Permalink
Thursday, January 19, 2006
Ég hef oft pælt í því að eins gott að við keyptum ekki bara tveggja herbergja íbúð. Þetta auka herbergi nýtist ekkert smá vel. Síðastliðinn mánuð hefur það verið í ansi mikinni notkun. M og P voru hjá okkur um jólin og komu svo aftur um síðustu helgi. Borgný kom svo til landsins í dag, en ég efast samt um að hún ætli að nýta herbergið. En hins vegar er Skúli að koma til landsins á laugardaginn og því kemur Jóa suður og er ansi líklegt að þau fái afnot af herberginu. Svo styttist nú í að við færum Hildi yfir í herbergið, þó að það gerist nú ekki alveg á næstu dögum.
En ég allavega mæli með því að fólk kaupi íbúð með auka herbergi því það kemur pottþétt alltaf til með að nýtast :)
Posted at 06:24 pm by
Kalli
Permalink
Sunday, January 15, 2006
Jæja, það er nú ansi langt síðan síðast. Það helsta sem við höfum afrekað undanfarið er:
Vorum í Reykjavík um jólin og það er óhætt að segja að það hafi aðeins bæst í dótasafnið hennar Hildar í desember ;)
Flugum vestur annan í jólum og vorum þar fram yfir áramótin.
Ég vinn bara minn vinnudag og allt í föstum skorðum þar. Gengur bara fínt að aðlagast starfinu og er farinn að kaupa inn á fullu.
Krista byrjaði í skólanum 9. jan og allt komið á fullt hjá henni. Tekur sjálfsagt smá tíma að finna lærdómsgírinn en þetta leggst bara ágætlega í hana.
Hildur Tanja er byrjuð hjá dagmömmu og gengur bara mjög vel. Óttar er hjá sömu dagmömmu þannig þau geta haldið áfram að leika sér saman allan daginn eins og fyrir áramót.
Ég útskrifaðist svo í gær og var haldin smá veisla í tilefni af því. Amma og afi frá Húsavík frá Húsavík pössuðu svo Hildi í gærkvöldi svo við kæmumst út á djammið (það gerist nú ekki oft á þessum bæ að heimilisfólkið fari á djammið).
Og að lokum aðal afrekið. Hildur tók sín fyrstu skref fyrir rúmri viku síðan ;) Hún er samt ennþá frekar óörugg en dettur stundum í gírinn og tekur nokkur skref.
En ég held að Hildur sé að vakna í vagninum þannig best að fara kippa henni inn. Reyni að láta ekki líða svona langt fram að næstu skrifum :)
P.s. Vissuð þið að það er nákvæmlega ár í dag frá því að Óttar og Hildur Tanja voru skírð ?? :)
Posted at 03:33 pm by
Kalli
Permalink
Thursday, January 12, 2006
Smellið á myndina og takið þátt í áskorun...
Posted at 10:06 am by
Kalli
Permalink